PolyTerra prentar alveg eins og venjulegur PLA, svo þú þarft ekki að breyta neinum prentstillingum hjá þér. Reyndar getur það jafnvel staðið sig betur í yfirhengi (overhangs) og brúarprófum (bridging)! Það hefur breitt prenthitastig á bilinu 190 til 230 °C og er hægt að nota það á hvaða þrívíddarprentara sem er, svo lengi sem að hann taki 1.75mm þráð.
Prentstillingar
Hiti: 190 til 230 ℃ Hitastig plötu: 25 til 60 ˚C Prenthraði: 30 til 70 mm/s Prentflötur: PEI, BuildTak, gler eða blátt borði og að sjálfsögðu nota Magigoo fyrir bestu viðloðunina. Kælivifta: Á, eins og sneiðforrit mælir með fyrir PLA. Þurrkun: 55˚c í 5 klst.
PolyTerra er 3D lífplasts prentunarþráður sem er auðvelt í notkun, skilar sér vel og er betra fyrir umhverfið!