Hringdu í síma 577-3020 fyrir aðstoð
Við erum við símann alla daga frá 9 til 20. Sími 577-3020
CR-6 SE er búinn sjálfvirku beðmáls nema auto bed level í prenthausnum sem nemur þegar stúturinn snertir prentflötinn þessi búnaður kallast á ensku strain gauge. Til þess að þessi nemi virki sem best og prentþráður eigi sem bestan möguleika að festast við plötuna, þurfa allir hreyfanlegir hlutir að vera með rétta herslu, ekki of fastir eða lausir og ekkert slag eða skrölt á að vera í prenthaus, heitaendanum, prentfletinum eða skekkjur í X ás.
Varðandi samsetningu þá mælum við með að huga að þessum atriðum hér að neðan sérstaklega og nauðsynlegt er einnig að yfirfara það sem er forsamsett frá framleiðanda.
Myndskeiðið sem vísað er í nokkrum sinnum hér að neðan væri gott að horfa í heild sinni á en við bendum á þau atriði sem við sjáum oftast ekki rétt gert í samsetningu.
Þegar samsetningu hefur verið lokið þá er hægt að fara í stillingu á sjálfvirka beðmálinu.
Gott er að þrífa glerplötuna með heitu vatni og uppþvottalegi, einnig hefur Magigoo reynst mjög vel. Prenta má á báða fletina á glerplötunni.
Aukaefni
CR-6 SE er með opnum hugbúnaði open-source og hefur Creality opinberað allar tæknilegar lýsingar um prentarann sem hefur gert samfélagi áhugamanna um CR-6 SE kleift að búa til stýringu firmware sem eru með fleiri stillingum og möguleikum en það sem Creality hefur gefið út.
Sjá má nánari upplýsingar hér: https://github.com/CR6Community/CR-6-touchscreen/releases
Leave a comment