Polymaker Panchroma PLA Translucent - 1kg.
Panchroma Translucent litirnir bjóða upp á einstök og sérstök áhrif, sérstaklega þegar prentað er með einföldum veggjum (e. single-wall prints). Gegnsæið og ljósdreifingin draga fram dásamleg smáatriði sem skína í gegn og gefa þrívíddarverkefnunum þínum fágað og lýsandi útlit sem grípur augað.
Helstu kostir
-
Einstök hálfgegnsæ áhrif við prentun með einföldum veggjum
-
Virkar frábærlega með öllum venjulegum þrívíddarprenturum
-
Mælt er með hægari prentun fyrir eldri prentara
Panchroma Translucent prentþráðurinn gefur prentverkunum þínum sérstakan blæ með því að hleypa ljósi í gegnum sig. Þannig skapast fallegur ljómi sem hentar fullkomlega fyrir hönnun með einföldum veggjum. Hvort sem þú ert að prenta skrautmuni eða nytjahluti, þá gefur þessi þráður mjúka og ljómandi áferð sem grípur augað.
Áreynslulaus prentun á hvaða prentara sem er
Engrar sérstakrar uppsetningar er þörf – Panchroma™ Translucent virkar hnökralaust með öllum venjulegum þrívíddarprenturum. Ef þú ert að vinna með eldri prentara þarftu einfaldlega að prenta á aðeins hægari hraða til að ná sem bestum árangri.