3D prentþjónusta
3D Verk bíður upp á hágæða þrívíddar prentþjónustu úr helstu efnum. Ef um einhver sérefni er að ræða er best að slá á þráðinn í síma 577-3020 og við leysum málið.
Til þess að geta gefið þér nákvæmt verð, þá þurfum við frá þér:
- Módelið í skráarformi (STL, 3MF eða OBJ)
- Lýsingu á því hvað hluturinn á að gera og hver "framhliðin" er á stykkinu
- Efnisóskir, PLA, PETG, ASA, PC, Nælon, TPU o.s.fr., við aðstoðað við efnisval m.v. lýsingu á virkni hlutarins
- Lit á prentverkinu
- Nafnið þitt, kennitölu fyrir reikning og símanúmer
Gott að hafa í huga að mjög mörg módel á netinu eru ekki hönnuð fyrir 3D prentun.
Hvað gerum við:
- FDM prentun úr prentþráðum (filament)
- Getum prentað nær öll efni á almennum markaði, árangur er háður hönnun á módelinu
- Sendum um land allt
- Getum gert prufur ef um stærri verkefni er um að ræða
- Höfum t.d. komið með prentara til sýnis og prentað stykki t.d. á Verk og vit, Smáralind o.s.fr. í markaðslegum tilgangi
Hvað gerum við ekki:
- Við lagfærum ekki gölluð 3D módel eða breytum ekki teikningum
- Engin eftirvinnsla: s.s. pússun, málun, epoxy húðun, hreinsun á stuðningsefni
- Bjóðum ekki upp á tæknitækningu á 3D módelum, en erum í samstarfi við aðila sem gera slíkt
- Við bjóðum ekki upp á Resin prentun (SLA), en t.d. minatures eru prentaðar í resin
- Tökum ekki að okkur föndur/hobby prent eins og hjálma, cosplay búninga, borðspil o.s.fr. slík prent eru mjög tímafrek og mælum með að viðkomandi kaupi prentara í slíkt
Hægt er að sjá hvað prentverk tekur um það bil langan tíma og efnismagn í slicer hugbúnaði sem allir geta sótt án endurgjalds t.d. Ultimaker Cura.
Hlökkum til að prenta með þér!
3dverk@3dverk.is - s. 577-3020