Sími 577-3020
Síminn opinn frá 9 til 18 - 577-3020
TPU er hitaþolið pólýúretan er sveigjanlegt prentefni með frábæra vinnsluhæfni og sérstaka teygjanlega eiginleika.
Fæst í tveimur mismunandi skölum á harðleika (Shore Hardness) A og D skali. Erum með fjölbreytt úrval af TPU frá Polymaker, Bambu Lab, Recreus, add:north, Extrudr og PrimaCreator.
TPU þarf öllu jafna að prenta hægar en PLA, TPU er með gott efnaþolið t.d. gegn vélarolíu og ágætlega hitaþolið, hentar því t.d. í varahluti í vélahúsi ökutækja. Framleiðendur mæla með því að þurrka TPU efni fyrir prentun, en rakinn á Íslandi hefur almennt ekki eins mikil áhrif og erlendis.
Mjúk TPU (85A og neðar) þurfa oft stærri stút en 0.4mm. Það er erfiðara að prenta TPU eftir því sem þau eru mýkri.
Láta mig vita
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningu þegar við uppfærum lagerstöðuna.
Einungis einn tölvupóstur er sendur þegar varan kemur á lager.
Skráning móttekin!
Við höfum hætt við beiðni þína.