Hoppa í meiginmál
Verslun Skútuvogi 6 opin virka daga 10:00-16:00
Verslun Skútuvogi 6 opin virka daga 10-16

Bambu Lab P2S Combo - 256x256x256mm

frá Bambu Lab
Sparaðu 11% Sparaðu 11%
Verð 139.900 kr
Verð 139.900 kr - Verð 139.900 kr
Verð 139.900 kr
Verð nú 124.900 kr
124.900 kr - 124.900 kr
Verð nú 124.900 kr
með VSK
Staða:
á lager, tilbúin til afhendingar
SKU PF004-U+SA007-EU1

Goðsögnin endursköpuð!

P2S er uppfærð útgáfa af hinum geysivinsæla P1S frá Bambu Lab P1S. Það er áfram sama stærð af prentfleti (256x256x256mm)

Combo útgáfan þýðir að AMS 2 Pro efnastöðin fylgir með en ekkert af efni.

Það sem vantaði í P1S er nú komið í P2S má nefna:

  • 5” Snertiskjár í lit
  • Hert stál í heitum enda og tannhjólum í matara (extruder)
  • Kælikerfi til að hægt er að prenta PLA með lokaðan prentara
  • Hitakerfi (hitablásari) þegar umhverfishitinn þarf að vera yfir um 50°C td. fyrir ABS/ASA/Nælon/PC efni
  • Öflugri stepper mótorar
  • Rauntíma myndavél 30FPS sem styður AI greiningu í prentun
  • Skynjari fyrir flækt filament (flækjufattari e.tangle detection)
  • Heiti endinn fer í 300°C og prentflötur í 110°C, ef þörf er að prenta efni sem eru á 300-350°C hita þá er H2 línan til þess
  • AMS 2 Pro litastöðin fyrir fjóra liti/efni fylgir Combo útgáfunni sem er með innbyggðum þurrkar, ekki er hægt að prenta á sama tíma þar sem efnin geta linast og stíflað tannhjólin
  • Quick Swap Nozzle, stútur sem auðvelt er að skipta um, eins og er komið í H2 prentarana og A1

Ekkert efni fylgir með í kassanum, mælum með að taka t.d. Bambu PLA

Bambu Lab Academy er frábær leiðarvísir um P2S má finna hér (þarfnast aðgangs hjá Bambu/Makerworld)