Hoppa í meiginmál
Verslun Skútuvogi opin virka daga frá kl. 10-16
Verslun Skútuvogi opin virka daga frá kl. 10-16
Yfirferð á Bambu Lab A1

Yfirferð á Bambu Lab A1

Framkvæma þarf reglubundið viðhald á A1 prentaranum frá Bambu Lab.

Það sem við sjáum mest að þeim prenturum sem koma til okkar í yfirferð:

  • Sleðarnir fyrir prenthausinn og prentflötinn eru stamir og ekki með nóg af olíu á sér
  • Stýringar (firmware) ekki uppfært

  • Heiti endinn á það til að losna aðeins eftir mörg hundruð klukkutíma í prentun.
    Losa þarf um þessar þrjár skrúfur til að geta hert fjórar sem eru aftan á hitaranum. Því næst eru þrjá hertar hæfilega mikið. Mikilvægt er að kanna að ekkert slag/færsla er á stútnum eftir að hann hefur verið settur í og smellan sitji rétt á stútnum

  • Skrúfur ekki nógu vel skrúfaðar inn undir prentfletinum, voru merktar í grænu í upphafi

  • Prentflötur óhreinn, þrífa með uppþvottalegi og heitu vatni

  • Ryk eða óhreinindi í viftum, gott að blása óhreinindi úr viftunni með blásara

  • Stútur orðinn slitinn sem veldur verri gæðum í prentun, ryðfríi stúturinn sem fylgir með prentaranum er að endast um 800-1200 klst, hér sést nýr stútur í samanburði við mikið slitinn stút 


  • Sílikon sokkur á heita endanum er orðinn lúinn og tættur

  • Klipparinn (filament cutter) er orðinn aðeins bitlausari, sem getur valdið auknum brotum þegar verið er að skipta um efni

  • Höfum stundum séð prentaðar viðbætur sem eiga að “bæta” prentarann hreinlega valda vandræðum

Hér má finna ítarlegar viðhalds leiðbeiningar frá Bambu Lab fyrir A1

Síðasta grein Ungur frumkvöðull selur fermingargjafir
Næsta grein Viðtal á Bylgjunni í Reykjavík síðdegis

Skilja eftir athugasemd

Við áskiljum okkur rétt til að lesa yfir allar athugasemdir fyrir birtingu

* Nauðsynlegt