Hoppa í meiginmál
Verslun Skútuvogi 6 opin virka daga 10:00-16:00
Verslun Skútuvogi 6 opin virka daga 10-16
Stífla í Bambu Lab A1 eða A1 mini?

Stífla í Bambu Lab A1 eða A1 mini?

Algengustu skilaboðin varðandi stíflur í A1 og A1 mini prenturum sem eru með AMS stöðunni er: “The AMS Slot motor is overloaded. The filament may be tangled or stuck.”

Þessi skilaboð koma þegar prentarinn nær ekki að setja efni í gegnum prenthausinn. Oft er það vegna þess að prentþráður (filament) brotnar eða situr eftir í prenthausnum.

Það sem við mælum með að byrja að skoða:

  1. Taktu stútinn af til að byrja kanna hvort vandinn leynist í mataranum (extruder) eða AMS Hub stykkinu sem er með 4 inngöngum fyrir PTFE túpurnar
  2. Taktu AMS Lite Hub af og kannaðu kemst efni óhindrað í gegnum hann? Gott er að nota lítið flatt skrúfjárn til að losa AMS Lite hub. Einungis kemst einn prentþráður í gegn í einu.

  3. Settu prentþráð í gegnum matarann (extruder). Kemst hann í gegn? Það kemur smá mótstaða þegar honum er ýtt niður sem er eðlilegt.


  4. Ef allt hér að ofan er ekki til vandræða þá er stúturinn stíflaður. Hægt er að reyna losa stíflur eða prófa að skipta honum út. Hér má finna stúta fyrir A1 og A1 mini
    Passa þarf að stúturinn sitji rétt:

    Hérna sést hvernig klemman leggst rétt að


Nánari leiðbeiningar á Wiki síðu Bambu Lab varðandi þessu helstu atriði tengt stíflum og vandamálum við mötun:

Skipt um stút á A1 og A1 mini

Mötunar (extruder) vandamál

Hreinsun á matara (extruder)

Stútur stíflaður (clogged nozzle)

Sjá nánar hér á wiki síðunni

Hreinsun á AMS Lite Hub stykkinu

 

Við hvetjum alla til þess að ljúka Bambu Lab Academy til þess að öðlast betri skilning á sínum prentara og auka færni í ummönnun.

Næsta grein 3D Verk leitar að starfsmanni á lager og afgreiðslu

Skilja eftir athugasemd

Við áskiljum okkur rétt til að lesa yfir allar athugasemdir fyrir birtingu

* Nauðsynlegt